Framandi og freistandi
Í eldhúsinu heima
YESMINE OLSSON sendir nú frá sér sína þriðju matreiðslubók en hér fer höfundur nýjar leiðir því með bókinni fylgir DVD mynddiskur þar sem Yesmine kennir kúnstir sínar skref fyrir skref eins og hún hefur gert á matreiðslunámskeiðum sínum í Veisluturninum. Áhersla er lögð á meðferð krydda sem eru einkennandi fyrir indverska og arabíska matreiðslu.
Þetta er bráðskemmtilegur pakki sem höfðar til allra matgæðinga hvort sem þeir eru að taka sín fyrstu skref í framandi og freistandi eldamennsku eða eru lengra komnir en vilja bæta við sig þekkingu. Sem áður fer Yesmine sínar eigin leiðir í eldhúsinu þar sem einfaldleiki og hollusta eru í fyrirrúmi.


